Björk

tott off!!!!

09.01.2008 16:51:52 / bjork

Lokablogg

Jæja.. ætli ég segi þetta ekki bara gott í bili.. ég er ekki að nenna þessu lengur...

Þið þarna sem eruð ekki með myspace.. endilega fáið ykkur svo við getum spjallað þar;)

Ásrún fær klárlega kommentaverðlaunin.. sem eru bara heiðurinn reyndar:)

En allavegana:

 

                                                       HÆTT Í BILI!

                                       Takk fyrir öll kommentin og allt!!!

 

Kv. Björk
 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 18:33:28 / bjork

jæja...

Æji Björk bitra ætlar að blogga smá..

Er í prófum.. fer í síðasta á morgun, íslensku.. vááá hvað ég er ánægð með að hafa hætt í MR! Ég hef komist að því að það er bara rugl.. alls ekki þess virði fyrir mig... kannski fyrir suma, að vera í þessum skóla... Ég fer bara í 3 próf núna.. allt hitt er símat svo að ég er bara nokkuð sátt... Og þó að það séu bara 3 próf þá er þessi skóli ekkert síðri en MR uppá kennslu og annað slíkt... er ekki frá því að kennararnir í MK séu bara betri en þessir snobbuðu í MR þá á ég ekki við alla samt..

Ahhh.. hlakka ótrúlega til að klára prófin!! Þó að annað í mínu lífi sé ekkert æðislegt þessa dagana.. má hvorki spila fótbolta né handbolta.. ekki einu sinni hlaupa og það er nokkurn veginn mitt líf svo að... Er með rifinn vöðva í lærinu sem rifnar bara meira ef ég geri e-ð svo að.. ég á að fara í myndatöku á morgun sem ég er búin að bíða eftir í 3 vikur eða e-ð... úfff:| Ég er hætt að geta horft á fótboltaæfingar því mig langar svo að vera með og ég er bara búin að vera mánuð í fríi!!8| Verð allavegana 1 í viðbót... váá.. hvernig væri ég ef þetta væri e-ð alvarlegra?? gvuuuð! Maður finnur samt kosti við þetta.. haha:) Þarf aldrei að hita upp, þarf ekki að kaupa mér nýja handboltaskó.. hehh:) Lærið er líka voðalega fyndið að horfa á... Er bæði með svaka fína holu og eitt stykki kýli! Váá.. tek einhverntíaman mynd og set hérna inn;) Svo fæ ég meiri tíma til að læra..:)

Ætla ekki einu sinni að tjá mig um aðra erfiðleika í mínu lífi þessa dagana! 

Váá.. verð að drulla yfir ákv. tegund fólks! Fólk sem heldur að áfengi og kúl bílar sem komast hratt sé bara það svalasta!

Pabbi minn var að keyra í vinnuna um daginn.. snemma mánudags morgun, klukkan svona hálf sex. Hann var með gluggann alveg opinn og sá svo í speglinum að það kom bíll á svaka siglingu fyrir aftan hann og byrjaði síðan að taka fram úr, svo hægðu þeir smá á við hliðina á pabba, allir svaka svalir með bjór, það er náttúrulega það svalasta að halda á bjór! Ég tala nú ekki um ef að það er líka sígaretta!! Þeir voru einmitt með sígarettu... og já, hægðu á sér þegar þeir fóru fram úr og hentu bjórdós og SÍGARETTU inn í bílinn!!!! Sígarettan fór næstum í augað á pabba og brenndi svo gat á úlpuna hans! Hann missti næstum stjórn á bílnum í hálku og þeim fannst það GEÐVEIKT fyndið! Fyndið ef hann hefði meiðst alvarlega? Eða dáið? ha? HÁLFVITAR! Djöfull þoli ég þetta ekki! Svona fólk á ekki að vera í umferðinni... Ábyrgt fyrir fullt af árekstrum.. yfirleitt af því að þeim fannst svo nauðsynlegt að vera kúl! ohhhh!!!!!:!:

Hahah.. pabbi sagði að ef að hann hefði náð þeim hefði hann barið þá! ég held að fólk vilji ekki lenda í gamla sko...

Fleira fólk sem ég vil drulla yfir.. jájá.. en ég ætla bara að leyfa því fólki að vera sorglegt í friði...

Jább! Biturleikinn alveg í hámarki! haha:)

En elsku amma mín náði samt að gleðja mig áðan... sendi okkur fjölskyldunni smákökur allla leið frá AK!:) Hún er best! Sakna þeirra afa svoldið.. og Akureyrar bara.. en jáá... 

Ætla að segja þetta gott í bili...

Kv. Björk sem ætlar EKKI að horfa á æfingu í kvöld!


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 12:52:37 / bjork

Glatað!

Æji.. váá.. þetta er glatað blogg... ég bara hef ekkert spennandi að skrifa.. Uuuu.. viljiði vita hvað ég gerði um helgina? handbolti, fótbolti.. já nei.. Uuuu.. hvað er á næstunni? Handbolti, fótbolti, skóli, próf.. já bless.

Reyndar er eitt svoldið spennandi á næstunni.. JÓLIN!:D En það vita nú allir... En já það er reyndar annað.. Er að fara út enn einu sinni til Arons.. 15. des og mamma og Laufey ætla að kíkka með!!:D Það verður gaman... En þetta er samt voðalega óspannandi fyrir flesta sem eru að lesa þetta blogg:S Í dag er 32 dagar þangað til... Ég tel alltaf niður dagana já..:$ hehh...

Heyrðu neinei! Luma ég ekki á fleiri spennandi hlutum!8| Ég er núna búin að fara í 2 ökutíma!!! Og ég er ekkert búin að klessa!! Drap einu sinni á á ljósum og fór einu sinni aðeins of hratt..:S Rugla svoldið gírunum.. En annars verð ég bara afbragðs ökumaður held ég8) Þetta keeemur...

Mig langar óendanlega mikið í Brynjuís og Greifapizzu:cry: Eeeeen.. ég kem reyndar norður 1. des.. líklega allavegana til að keppa í handbolta:S Ekki spurja mig í hvaða liði ég er að spila með og afhverju.. ég er algjör liða****:| En ég bara gat ekki staðist freistingunaþþ ég meina ef maður er beðinn um þetta.. hehe.. Efast samt um að ég nái báðu:S Nema ég verði eftir... neee.. of stutt í prófin þá..:$

En allavegana ég er bara alveg að fara að gefast upp... ég er alltaf bara á myspace-inu

http://www.myspace.com/bjorkbjoss

Þar er hægt að skoða myndir og svona... Miklu auðveldara að setja þær þar inn heldur en hér...

En já.. reyni að bæta mig!

Nokkrar myndir hérna af nýlegustu atburðum lífs míns;) 


Ég og Laufey... Portúgal með u-19:D

Ég og Aron og Jói sæti... Verðum pössunarpíurnar hans í Hollandi:D

Elísa, ég og Lovísa... fyrir Lokahóf KSÍ:D

Tasha og ég á lokahófi Fylkis:)

Ég og Aron á Kínastaðnum, þegar ég heimsótti hann síðast...:)
Aron kom hérna heom um daginn..:)

Kv. Björk

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 10:44:47 / bjork

Holland...

Hae krúsur og snúllur!! Er stodd í Hollandinu góda hjá Ronna og aetladi bara ad lata vita af mér...

En eitt.. Skandall my ass! Frída á thetta skilid midad vid leikina sem vid í Fylki spiludum á móti henni! Áttum ekki breik!!! Og sms eda e-mail KJAFTAEDI! haha.. djok eftir leik hmm.. kannski en ekkert sms eda e-mail hjá mér allavegana! Thetta er svo mikid bull!!! Vonandi lestu thetta Frída;) uuu.. sensinn hehe:) en allavegana búin ad tjá mig um thetta mál.. búid..

En eins og thid sem thekkid mig thá get ég ekki látid kyrrt vid liggja í e-u svona.. jafnvel thó ad thad komi mér lítid eda ekkert vid..

Kv. frá Hollandinu.. Bjork 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 13:45:54 / bjork

Lalalala...

Kominn tími á blogg???... neiiii.. látiði ekki svona.. hvaa? hehe..

Æji... ég hef alveg margt að segja sko.. en einhvernvegin kem því ekki út..

Var að koma heim frá Portúgal með u-19, það var ágætisferð.. ekkert spes samt:S Hef alvg farið í þær skemmtilegri skoo.. En við unnum samt allt.. ætti það ekki að vera skemmtilegt? Miðað við að yfirleitt eru íslensk kvennlandslið ekkert að vinna mikið.. Núna unnum við alla leikina létt og vorum yfirburðarlið... Bara sókn alla leikina.. Júúú.. það er mjög gaman að okkur hafi gengið svona vel:) Hefði bara getað verið miklu skemmtilegra.. Næsta mót í apríl og þá verður skemmtilegra!

Það er voða lítið í gangi þessa dagana.. er komin í frí í boltanum og hef gjörsamlega ekkert að gera nema að læra... ætti að nýta tímann betur eiginlega..:$ Er að pæla í að skella mér á handboltaæfingar eða e-ð á meðan en vil ekki troða mér... Kannski fer ég í blak! haha:D Svo er ég að fara í fyrsta ökutímann minn núna á næstu dögum! spennóóóó..

En svona til að gera þetta blogg enn leiðinlegra og auka líkurnar á að þessi síða mín fái verðlaun fyrir að vera ömurleg þá langar mig að segja ykkur hvað það eru ótrúlega skemmtilegir hlutir á næstunni...

  1. KSÍ hófið... Það er svo gamaaaaan! Fæ að klæðast bleika kjólnum og vera virkilega fín svona einu sinni.. Taka mig til með stelpunum.. ohhh það er svo gaman!:D og fara á hófið sjálft... mjög mikil spenna í því hver fái verðlaun ársins.. hmmm.. Þetta verður gaman!
  2. HOLLAND Veih! Veih! Veih! Fer og verð með Aroni í viku!! Vááá hvað ég hlakka til! Bara það að standa við hliðina á honum vekur þvílíka eftirvæntingu! Svo förum við saman að versla í H&M:) hehehe.. Og allt hitt!!
  3. Uppskeruhátíð Fylkis... Það verður stuð..
  4. Byrja aftur að æfa og verða þrusu, miklu betri! Ég hef lært það núna á undanförnum dögum að maður uppsker ekki alltaf því sem maður sáir... En ég hef líka lært það að maður á aldrei að gefast upp... Arooon;)
  5. Æfingaakstur!!!

Ég ætla svo að enda þetta blogg á lista af lögum sem ég elska fyrir að vera ótrúlega falleg og róandi... Með smá undantekningum;)

  1. Romeo & Juliet - Dire Straits
  2. Fistful og Love - Antony and the Johnsons
  3. Surrender - Billy Talent
  4. Að eilífu ég lofa - Fræ
  5. Stage of emergency - Björk
  6. Verum í sambandi - Sprengjuhöllin
  7. The young ones - Munich

Koma síðan kannski nokkrar myndir...

Kv. Björk

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 18:18:16 / bjork

Vei! Vei! Vei! vei!

Hahaha.. Er ég eitthvað meira en bara með flensu á þessari mynd???



Gvuuuuð!

En allavegana.. VIÐ UNNUM Í GÆR!!! Váááhh ég er svo ánægð!!!:D Ef ég hefði náð að spila allan  leikinn væri ég ENNÞÁ ánægðari!! Ég varð semsagt veik í gær og bara fann loksins almennilega fyrir því þegar leikurinn var byrjaður.. gott björk mín..  En sóó... Við unnum ég er sátt!!!:)

Ég er samt búin að jafna mig núna.. kepp með 2. flokki í kvöld og spila frammi:) Ég er búin að spila frammi núna í sípustu leikjum og búin að skora 3! ég er ekkert að monta mig skoo..;)  En allavegana þá er leikur í kvöld..

Það er bara allt gott að frétta þessa dagana..:) Aron minn kemur á laugardaginn þannig að það er bara eintóm hamingja hjá mér núna.. sama hvað annað er að gerast:)

Ég kem með fleiri fréttir næst..

Kv. Björk:) 


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 14:30:06 / bjork

Núverandi...

Núverandi tími: 30. ágúst 14:19

Núverandi föt : Svartar NIKE-buxur, hvítur, rauður og grára, röndóttur bolur, grá hettupeysa og hvítie sundskór.

Núverandi skap: Bara ágætt svosem...

Núverandi lykt: Forever Romance, Victoria secret.

Núverandi farði: Maskari.

Núverandi undirföt: Blómamunstur... Mjáááá!

Núverandi vonbrigði: Að hafa ekki komist upp um deild í 2. flokki.

Núverandi áform fyrir helgina/kveldið: leikur við Stjörnuuna í kvöld!!!!!:D

Núverandi hatur: Hiti...

Núverandi ósk: Bryyyynjuííííííís...

Núverandi hár: Slegi með toppinn niðri.. voð þægt og gott:)

Núverandi dót í vösum: ekkert.

Núverandi pirringur: Hallærislegu gaurarnir við hliðina á mér að hlusta á einhvern techno viðbjóð!

Núverandi aðhlátursefni : Hehh.. Gaurarnir við hliðiná.. hlæ í hljóði samt! hehe:)

Núverandi stolt : Skallamarkið mitt á móti HK:D

Núverandi tónlist: Technoviðbjóðurinn:(

Núverandi skartgripir: Krossinn sem Aron gaf mér og hvítir demantaeyrnalokkar.

Núverandi löngun: Kúr með Ronnaboy og sigur í kvöld!

Núverandi áhyggja: hmmm.. smá leikurinn í kvöld og kemst ekki inn á innu.. hef ekki hugmynd um í hvaða tíma eða stofu ég á að fara í næst..:S

Núverandi kvikmynd: Crash.. sjúklega góð sko!:)

Núverandi setning á heilanum : hvaða hvaða?

Núverandi desktop pic : Blómamynd sem ég tók:)

Núverandi eftirsjá: engin... Franskar í hádeginu?

Núverandi skemmtun: Þetta og ekkert annað!

Núverandi blótsyrði: Helvítis..

Núverandi staður: MK...

Núverandi hljómsveit: Blok Party.

Núverandi söngvari: Aron...

Núverandi kærasti: Bíddu nú... Minnir að hann heiti... nehh ohh man ekki..

Núverandi land: Ísland.. með Holland í huga samt..

Núverandi e-mail: Bukkalukka@hotmail.com

Núverandi símanúmer : 659-6.....

Núverandi hlutir á veggnum: Brunatæki fyrir framan mig..

Núverandiuppáhaldsþættir: Nágrannar.

Núverandisöknuður: Aron og Akureyri.

Núverandilitur: Hvítt og gull..

Núverandi árátta: setja hárið bakvið vinstra eyrað.

Núverandi hlutur til að hlakka til: Keppa í kvöld.

Núverandi Msn manneskjur: Er ekki á MSN

Núverandi manneskja til að forðast: Laufey...

Núverandi vinur: Laufey...

Núverandi sársauki: Bakið.

Núverandi ást: Aron.

 

Jóhanna.. svona sér fyir þig;) Það er bara mjöööög fínt í MK... Góð kennsla og frekar auðvelt nám:) Eina sem er að ég er ennþá að ná tölvuveseninu öllu.. hehh:) Þekki alveg nokkra og svona:) ég er bara sátt:) 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 16:47:52 / bjork

..no name..

Jæja.. ætli ég bloggi ekki.. það nennir samt enginn að lesa þetta..

En já.. ég segi ykkur, sem nennið að vera góð við mig, frá verslunarmannahelginni.

Ég fór norður yfir heiðar á Akureyri, besta staðinn og átti góða helgi bara, var voða mikið að slappa af.. Gistum hjá vinafólki okkar, Gulla og Beddu og þar var líka 2 mánaða strákur,algjört æði! Dóttir þeirra Elva á hann og hann er gjörsamlega ómótstæðilegur! ég lét hann ekki í friði sko:$ ég komst svo að því að ég er ekki alveg nógu kúl fyrir partýstandið þarna.. heehh.. nölli jóns mættur bara:$ En alltílæ! kom á föstudeginum og fór í sund.. alltaf gott:) En sá ENGAN sem ég þekkti í sundi! engan.. Eru allir hættir að nenna að fara í sund? Bara e-r útlendingar í g-strengjum! pfff!:| hehh:) En já.. kíkti svo e-ð aðeins í bæinn.. sá sprengjuhöllina.. mér fannst þeir æði.. en allt hitt var frekar.. já.. Hitti Sunnu og Ásrúnu smá áður en þær hurfu á braut og svona..:)

Á laugardaginn fór ég í sjötugsafmæli hjá afa, þau héldu veisluna í sumarbústaðnum sínum í Öxarfirði.. 2 tíma keyrsla frá AK.. Yndislegasti staður í heimi! ohh... ég elska að vera þarna!:D Afi bauð náttlega yfir 100 manns og svona.. mikið af gömlum frændum og frænkum.. mér líður ágætlega í kringum þau:) Alltaf að segja manni hvað maður sé fallegur og góður:) hehe:) Hitti líka sætustu frænku og sætasta frænda frá Noregi.. Maríu og Össur.. ég var liggur við með strengi eftir daginn á því að halda í litlu (7ára) ég get ekki sagt nei við svona krútt:S ekki að hún hafi beðið um mikið heldur..:) Svo var sungið um kvöldið.. og nóttina.. ég gat voooða lítið sofið af því að svo var hrotið þegar söngurinn stoppaði loksins;)

Á sunnudeginum keyrðum við aftur til Akureyrar og ég og Laufey fórum aftur í sund.. svo hitti ég Jónu (tengdó).. hún var svo góð að fara með mig i Brynju OG gaf mér ilmvatn og body butter úr Victoria's secret.. úff! Hún er alltaf að gefa mér e-ð og bara þessi fjölskylda! verð að finna e-ð svaka til að gefa þeim! Ef þið eruð með hugmynd þá þigg ég;) En já.. svo kíkti ég í brekkuna með Sunnu og hitti þar Ásrúnu.. röltum svo í bænum og svona.. Jenný og Goggi sóttu okkur svo.. Takk:) og svo enduðum ég og litla sys í playstation.. hehh:$ Fórum í Crash.. Snilldarleikur!:)

Heim.. og beint á æfingu þar sem stelpan brilleraði sem útileikmaður.. nokkur mörk skoohh8) eitt með skalla8) heheh.. þið vitið hvernig markmenn eru.. við verðum alltaf að monta okkur.. það er bara þannig;)

Aron.. þú varst ekki að missa af miklu.. nema kannski Brynjuís með mér og mömmu gömlu;) bestu manneskjunum;) Neeee.. þú misstir ekki af neinu ástin.. Elska þig..:)

Myndir væntanlegar!:)

En nóg komið af bulli sem enginn nennir að lesa.. ég er ekki frá því að Aron lesi þetta ekki einu sinni! hehh:)


Við systur með afmælisbarninu.. sjötugur? hvað bull er það spyr ég nú bara...;)

Við systkinin og María litla frænka:)

Laufey með Bjarma sætasta.. Hvað er hún samt búin að kenna honum? (puttinn):haha: 

En allanvegana! Kv. Björk


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 21:00:54 / bjork

Ónefnd færsla

Í dag er ekki öðruvísi að vera öðruvísi. Í dag er í tísku að vera öðruvísi.

Jæja! er ekki kominn tími á almennilegt blogg núna?

Heyrðu.. það er bara allt gott að frétta af mér... búin að eiga frí alla helgina og BARA búin að slappa af! Búin að vera frekar einmana reyndar.. Laufey að spila með u-19 (ég komst ekki semsagt) og svo er Aron búinn að vera í e-m æfingabúðum og getur voða lítið talað við dolluna sína!:| hehh:) og svo allir einhversstaðar í burtu bara! pffpfff! En jújú.. ég náði að nýta einsemdina:) Kaupa mér geggjaðan, bleikan kjól! gera myspace sem er alltof ruglingslegt.. í augnablikinu:$ Fór í litun og plokkun í gær og þreif herbergið mitt.. eða mamma eiginlega.. hehh:) En herbergið þurfti virkilega á því að halda að vera þrifið!8| Búin að vinna á fullu núna síðustu 3 vikur og hafði gjörsamlega engan tíma..

Það er semsagt voða lítið búið vera í gangi hjá mér síðustu daga nema vinnan og boltinn.. sem er ágætt..:$

Ég fór að pæla í í gær hvort að ég væri ofdekruð??:| Svo komst ég að því að ég er ofdekruð þegar það kemur að mat og skutli.. ég á náttúrulega að vera LÖNGU búin að læra á bíl! Mamma og pabbi verða stundum frekar pirruð á þessu skutli útum allt.. sérstaklega í vetur þegar ég æfði handbolta á Seltjarnarnesi!8| Og í sambandi við matinn þá erum ég og Laufey einu manneskjurnar í vinnunni sem gera nestið sitt ekki sjálfar... og ég get alveg viðurkennt það að það er alveg eðlilegt að vera byrjaður að gera nestið sitt sjálfur 18 ára gamall.. hehe:) Við erum bara svoona heppnar:)

En allavegana þá er ég að fara að læra á bíl.. en ég veit nú ekki með nestið..;) hehe..

En vááá! ég er samt ekki OFdekruð.. bara smá dekruð:lol: Veit um svo mörg miklu verri dæmi þar sem börnin gjörsamlega stjórna foreldrunum! klessa bílana þeirra ekki með bílpróf og verða varla skömmuð! Ég er skömmuð fyrir minnstu hluti og ef það er e-ð sem mig langar í þarf ég að hafa fyrir því að fá það.. annað er bara óeðlilegt.. finnst mér:$

En vááá! nóg um þetta.. mjög ómerkilegt björk.. hehe:)

Fylkir-Breiðablik næsta föstudag!8| = ég á móti Laufeyju:S og Hlínsu og Önnu..:S smá stress í gangi... þetta verður e-ð skrítið:| hehe:)

Og svo til að slá endapunktinn í þetta blogg mitt þá vil ég benda ykkur á www.myspace.com/bjorkbjoss

Þetta er reyndar allt í vinnslu ennþá en þið getið addað mér sem vin;) plíííííííís? hehe:)

Gott í bili..

Kv. Björk


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 22:26:03 / bjork

Í sól og sumaryl..

 

Aron spilaði fyrsta leikinn sinn með aðalliðinu í dag, til hamingju ástin.

 

Annars á ég erfitt með að finna e-ð spennandi... þó að það sé fullt af spennandi hlutum að ske..:)

Ég er ömurlegur bloggari!

Kv. Björk


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 20:57:00 / bjork

DRAMA.. dramadrama..

Jæja þá... Aron farinn og þá byrja erfiðu dagarnir.. Sorrý ef ég hreyti einhverju í ykkur.. eða ef ég tek sms fram yfir ykkur að tala..:$ hehh:)

En vááá.. Fylkir - Valur! Eigum við e-ð að ræða það? Þið sem vitið ekki hvað er í gangi lesið væludálk í fréttablaðinu.. viðtal við hana Elísabetu, þjálfara Vals.. sem að by the way, byrjaði að RÍFAST við Töshu vegna einhvers sem var öskrað af bekknum.. sem að heyrist reyndar í hverjum einasta leik! Eigum við að fara með það í blaðið eða? Ég veit allavegana að Vals-stelpurnar hefðu kært eða e-ð álíka ef að okkar þjálfari hefði gert hið sama...8| miðað við væl síðustu daga allavegana..;) Áhorfandinn "vopnaður gjallarhorni" Hahahaha:haha: Snilld.. Ég veit að hann fór yfir strikið en róleg á vælinu!8| Og ýkjum! (ætti að koma kall með stærri augu en þessi fyrir framan!)

En allavegana nóg um þetta.. ég ætla ekki að fara með þetta á hallærislega stigið.. næsta stig semsagt;)

Annars fór leikurinn 3-1 fyrir Val en við hefðum nú átt að halda jafntefli:S En svona er boltinn..

En annars er ég bara búin að hafa það gott.. með ástinni minni síðustu daga.. Fórum í golf og sund og bíó og Bláa lónið og slöppuðum af.. fótbolta og keilu, pool... og fleira.. Mér fannst samt best að slappa af með þér og geta talað og bullað í rólegheitunum.. það var ótrúlega gott að vera með þér engill og ég er strax byrjuð að athuga með tíma fyrir mig að koma.... kemur allt í ljós..

Svo eru hérna sjóðheitar fréttir af mér.. ég hef ákveðið að skipta um skóla þar sem að ég féll í latínunni og við systur erum á leið í MK... Þar sem ég ætla að fá 10 í ÖLLU! Sjáum til með stræðfræðina samt;)

Það sem er á döfinni hjá mér er leikur við Keflavík á föstudaginn og svo vinna vinna vinna.. landsmótið og svo Gullmótið og allt í stressi! græði vonandi vel á því:D fæ náttúrulega helling í yfirvinnu.. ætla að vera dugleg:)

En segji þetta gott í bili..

Kv. Björk

Sætastur! 


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 17:45:32 / bjork

MYNDIR

Komnar myndir fyrir ykkur sem hafið ekkert að gera í vinnunni;) hehe:) neee djók..:)

Njótiði..

Tyrkland 2007 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 18:52:21 / bjork

Jæja þá..

Hæ.. aftur eftir langa pásu..

Ég var úti í Tyrklandi í geðveikum hita!!!8) Jámm.. 46 gráður síðasta daginn! Ég hélt mig nú bara í skugganum, fór út á vindsæng í smástund og varð sjóveik:$ aulalegt..

En já.. ég veit ekki hvort ég nenni að koma með e-r smáatriði.. kem bara með myndir..

En ég kem þó með nokkra punkta:

  • Laufey er æðisleg
  • Svoldið mikið verslað hjá sumum (Aron aðallega) sumt fake og annað ekta en þið mynduð ekki sjá muninn!;)
  • Einn leðurjakki á Aron.. hvítur.. Mjááá!
  • Sölumennirnir létu mann ekki í friði.. algengustu setningarnar.. very low price! Only for you MY FRIEND! Just have a look..
  • Jóna var komin með gott lag á að forðast þá samt.. læddist burt bara eins og fagmaður!;)
  • jet-sky og fly-fish.. geðveikt gaman!:D
  • Blak í sjónum:)
  • Addi fékk tattoo... Skrifað addi á arabísku..:)
  • Sá EITT ský! allan þennan tíma og það var líka minnsta ský sem ég hef séð..:|
  • Aðallega bara legið og slappað af.. mmmm...
  • Aron fékk lit... Björk líka..:)
  • Vááá.. ég get ekki hugsað meira í augnablikinu..
  • Komum heim 6 í nótt eftir 6 tíma flug!:S

Kem með myndir og kannski aðeins meira frá vikunni bráðlega..:)

Kv. Björk.. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 23:18:02 / bjork

Snilld!

Þetta verðiði að sjá? ég hló mig gjörsamlega máttlausa!:haha: Sunna benti mér á þetta.. takk Sunna:D

En allavegana ætli mamma og pabbi hafi fílað þetta á sínum tíma??

http://www.youtube.com/watch?v=MYllzQPQp78 

Annars blogg ég á morgun... kannski...;)

 

Kv. Björk.. Góða nótt:) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 21:21:20 / bjork

MYNDIR

 

 

 

*Portúgal, seinni hluti*

OHHHH! farið inn á www.picturetrail.com/fylkir89 ÞETTA VIRKAR EKKI Í AUGNABLIKINU... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12